Sigríđur Kristín Birnudóttir: Grófarsalur á 6. hćđ Grófarhúss 

Sigfús Eymundsson: Hollenska myllan á horni Ingólfsstćtis og Bankastrćtis, um 1890Kristín Hauksdóttir: Myndlistarnemar á August Sander sýningu, 2002 Sigríđur Kristín Birnudóttir: Grófarhús 

Ljósmyndasafn Reykjavíkur er eina sjálfstætt starfandi ljósmyndasafnið á landinu. Það var upphaflega stofnað sem einkafyrirtæki árið 1981 en árið 1987 eignaðist Reykjavíkurborg safnið. Árið 2000 flutti svo Ljósmyndasafnið í ný húsakynni, í Grófarhús, Tryggvagötu 15, 6. hæð. (sjá kort.) Safnið er í sambýli við Borgarbókarsafn og Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Í næsta húsi, Hafnarhúsinu, er Listasafn Reykjavíkur

Hlutverk Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að varðveita ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur með þeim hætti að borgarbúar og gestir þeirra hafi sem bestan aðgang að ljósmyndun í eigu safnsins. Safninu er ætlað að byggja upp og varðveita safn íslenskra ljósmynda sem varpa ljósi á sögu greinarinnar, skrá það, varðveita og sýna. Leitast skal við að afla myndasafna sem endurspegla sem best íslenskan ljósmyndaarf, sem og myndefnis sem tengist Reykjavík. Markmið safnsins er að kynna bæði sögulega og samtímaljósmyndun í listrænu, félags- og menningarlegu samhengi. 

Leiðarljós Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að safnið eflist sem ljósmyndasafn í alþjóðlegu samhengi og veki áhuga sem flestra á menningarlegu hlutverki ljósmyndarinnar. 

Ljósmyndasafn Reykjavíkur leggur einnig stund á og stuðlar að rannsóknum á ljósmyndun á öllum sviðum, svo sem ljósmyndasögu, listfræði og forvörslu svo nokkuð sé nefnt. Ljósmyndasafnið skapar fræði- og fagfólki aðstöðu og tækifæri til fjölbreyttra rannsókna á ljósmyndum og þáttum henni tengdri. Það er með safnkennslu fyrir öll skólastigin um sögu ljósmyndarinnar s.s tækniþróun, sem listgrein og heimild. 

Á safninu er starfrækt myndvinnsla sem annast vinnslu á myndum fyrir safnið og viðskiptavini (sjá verðskrá). Safnið veitir almenningi, fyrirtækjum og stofnunum Reykjavíkurborgar ráðgjöf og þjónustu á sviði ljósmyndunar.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir ljósmyndaefni sitt við fullkomnar geymsluaðstæður í geymslum sem eru hannaðar samkvæmt ströngustu kröfum um varðveisluskilyrði. Á staðnum er sérútbúið forvörsluverkstæði.

Frá og með árinu 2006 býður Ljósmyndasafn Reykjavíkur upp 10 sýningar á ári. Í aðalsal hefur sýningum verið fjölgað úr þremur í fjórar. Markmiðið er að kynna íslenska ljósmyndara og koma á framfæri, sýna verk úr safneign sem og að sýna verk erlendra ljósmyndara. Safnið hefur einnig sterka meðvitund fyrir samspili hinnar hefðbundnu ljósmyndunar og nýrra myndmiðla í samfélaginu. Sérstök áhersla er m.a. lögð á að sinna þeim þætti í Skotinu sem er sýningaraðstaða í anddyri safnins þar sem myndum er varpað á sýningartjald af myndvarpa auk upphengingar á veggi. Sex sýningar eru þar settar upp ár hvert.


Ljósmyndasafn Reykjavíkur á Flickr Commons

Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur fengið aðild að The Commons á Flickr með það að markmiði að auka aðgang almennings að safneign sinni sem og til fræðslu.
Myndir Ljósmyndasafns Reykjavíkur á The Commons falla ekki undir höfundarrétt. Safnið heimilar ekki að myndirnar á The Commons brjóti gegn rétti þriðja aðila, nú óþekktum, sem gæti átt réttinn að þessum myndum. Notandinn þarf því að þekkja höfundarréttinn og aðrar takmarkanir sem sem gætu átt við þessi verk.

Höfundarrétturinn á myndum Magnúsar Ólafssonar er runninn út og eru þær frjálsar til afnots. Engu að síður værum við þakklát ef þú gerðir tilvísun í ljósmyndarann og safnið.
Til þess að skoða myndir Ljósmyndasafns Reykjavíkur á The Commons, vinsamlegast ýtið á þennan tengil http://www.flickr.com/photos/reykjavikmuseumofphotography/.
Til þess að fá hágæða eftirmynd af upprunalegu myndinni vinsamlegast farið á myndavef okkar http://ljosmynd.rvk.is/fotoweb/grid.fwx og til að kaupa hágæða eftimyndir af upprunalegu ljósmyndinni, hafið samband við photomuseum@reykjavik.is


Hvað er The Commons á Flickr?

The Commons er vettvangur á hinum vinsæla ljósmyndunarsamfélagsvef Flickr.com sem gæti útleggst sem „sameiginlegt svæði“ eða „almenningur á íslensku“. Aðalmarkmiðið er fyrst og fremst að sýna þér faldar gersemar í opinberum ljósmyndasöfnum vítt og breitt um heiminn og í öðru lagi að sýna hvernig þitt framlag og þekking getur stuðlað að því að bæta og auðga þessi söfn.

Þér er boðið að hjálpa til við að lýsa myndunum sem þú uppgötvar í The Commons á Flickr, annaðhvort með því að merkja þær eða skilja eftir athugasemdir.




 

                                                                                 

Starfsmenn

María Karen Sigurðardóttir, safnstjóri,
maria.karen.sigurdardottir@reykjavik.is

Kristín Hauksdóttir, verkefnisstjóri þjónustu og safnkosts,
kristin.hauksdottir@reykjavik.is

Gísli Helgason, verkefnisstjóri rannsókna og skráningar,
gisli.helgason@reykjavik.is

Jóhanna Guðrún Árnadóttir, verkefnisstjóri sýninga og safnfræðslu,
johanna.gudrun.arnadottir
@reykjavik.is

Sigríður Kristín Birnudóttir, verkefnisstjóri myndvinnslu,
sigridur.kristin.birnudottir@reykjavik.is

 

                                              

               

                 ©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography

                    photomuseum@reykjavik.is